Vinstri græn stilla upp í Suðurkjördæmi
Ákveðið hefur verið að stilla upp á lista Vinstri grænna í Suðurkjördæmi fyrir næstu Alþingiskosningar. �?etta var ákveðið á aðalfundi kjördæmisráðs á Selfossi 7. maí sl.
Mikill hugur var í fundarmönnum og ljóst að fólk er tilbúið að vinna af alefli að framgangi Vinstri grænna í komandi kosningabaráttu í Suðurkjördæmi. Ákveðið var að gefa því fólki sem gengið hefur til liðs við hreyfinguna eða vill gera það, tækifæri til að gefa sig fram, vilji það taka sæti á lista fyrir kosningarnar. Einnig er mögulegt að senda inn ábendingar og tilnefningar um fólk sem vill taka sæti á lista Vinstri grænna fyrir næstu kosningar. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, ávarpaði aðalfund kjördæmisráðsins á Selfossi. Hún fór yfir þau mál sem eru í brennidepli á þinginu og ræddi hún stöðuna í stjórnmálunum og undirbúning fyrir kosningabaráttuna sem nú er framundan.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.