HS Veitur vilja stökkva frá borði - Hafa hagnast vel
31. janúar, 2024

„HS Veitur (áður Hitaveita Suðurnesja) hafa frá árinu 2002 rekið vatnsveituna í Vestmannaeyjum á grundvelli heimildar í lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, en um er að ræða skylduverkefni Vestmannaeyjabæjar samkvæmt fyrrgreindum lögum. Er jafnframt fjallað um að það í lögunum að það sé forsenda samnings sveitarfélags að unnt sé að tryggja notendum vatn á viðráðanlegu verði,“ segir í fréttatilkynningu frá HS Veitum sem nú hafa gefist upp á rekstrinum. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta hefur verulegur hagnaður verið af rekstrinum.

Í tilkynningunni segir: „Þær einstöku aðstæður eiga við í Vestmannaeyjum að flytja þarf vatn frá landi um neðansjávarlögn með verulegum tilkostnaði sem venjulegur rekstur vatnsveitunnar ber ekki. Skýrir þetta hversvegna Vestmannaeyjabær er eigandi neðansjávarlagnarinnar milli Landeyjasands og Vestmannaeyjabæjar og hlaut vegna uppbyggingu hennar ríkisstuðning árið 2009.

Samkvæmt samningi HS Veitna við bæjarfélagið reka HS Veitur neðansjávarlögnina í tengslum við vatnsveituna sem leigutaki og hafa fyrirfram greitt fyrir afnotin til ársins 2044, sem var áætlaður endingartími lagnarinnar.

Eftir að Huginn VE 55 olli stórtjóni á lögninni 17. nóvember sl. hafa HS Veitur unnið ötullega að því að tryggja að unnt sé að flytja vatn um hana til að fullnægja vatnsþörf í sveitarfélaginu. Mikilvægt er að ráðist sé í viðgerð á lögninni sem verður kostnaðarsöm en tekjur vatnsveitunnar munu ekki standa undir þeim kostnaði. Ekki liggur fyrir hvort bætur fáist vegna tjónsins. HS Veitur hafa ítrekað lagt áherslu á að Vestmannaeyjabær beri ábyrgð á lögninni sem eigandi og sé skylt að koma að greiðslu kostnaðar sem því fylgir að koma lögninni í nothæft ástand. Fyrir liggur óháð lögfræðileg álitsgerð sem unnin var fyrir innviðaráðuneytið þar sem komist er að sömu niðurstöðu.

Lofa því sem þegar er orðið

Vestmannaeyjabær hefur ekki axlað þessa ábyrgð og vísað henni með öllu frá sér. Í ljósi afstöðu Vestmannaeyjabæjar er það mat HS Veitna, að rekstrarforsendur vatnsveitunnar í Vestmannaeyjum séu á ný brostnar og þar með samningar milli aðila um eignarhald vatnsveitunnar og leigu á neðansjávarlögn því tengdu.

Hafa HS Veitur vegna fyrrgreindra vanefnda og brostinna forsendna í rekstri vatnsveitunnar og samningum milli aðila óskað eftir að Vestmannaeyjabær leysi til sín vatnsveituna í Vestmannaeyjum í samræmi við 3. mgr. 4. gr. Laga nr. 32/2004. Þess er vænst að viðræður milli aðila hefjist fljótlega.
Auk vatnsveitu reka HS Veitur rafveitu og hitaveitu í Vestmannaeyjum. Framangreint hefur ekki áhrif á þann rekstur fyrirtækisins og ekki er gert ráð fyrir fækkun starfsmanna hjá HS Veitum vegna þessa,“ segir í tilkynningunni.

Mjög hefur dregið úr mannahaldi HS Veitna í Vestmannaeyjum síðustu árin. Samkvæmt heimildum voru rekstrartekjur vatnsveitunnar rúmar 200 milljónir króna á árinu 2022 og kostnaður um 70 milljónir. Dágóður afgangur það.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.