Í 1. sæti í þjónustu við barnafjölskyldur

Samkvæmt árlegri þjónustukönnun Gallup ríkir almenn ánægja meðal íbúa í Vestmannaeyjum með þjónustu bæjarins. Þetta kemur fram á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar en niðurstöðurnar voru kynntar á opnum fundi á miðvikudaginn.

Fram kemur að 12 þjónustuþættir af 13 eru yfir meðaltali í samanburði við 19 stærstu sveitarfélög á landinu. Almennt er ánægja með þjónustu sveitarfélaga að minnka samkvæmt könnuninni.

Vestmannaeyjabær er í 1. sæti í þjónustu við barnafjölskyldur fjórða árið í röð. Sveitarfélagið hækkar sig í þremur þáttum á milli ára, m.a. þegar spurt er um þjónustu leikskóla og þjónustu við eldri borgara. Vestmanneyjabær er í 2. sæti þegar spurt er um þjónustu sveitarfélagsins þegar á heildina er litið.

Þetta er mjög jákvætt og gott veganesti í þeirri vinnu að bæta enn frekar þjónustu við bæjarbúa.

Af könnuninni má ráða að samgöngur hafa mikil áhrif á hug íbúa til Vestmannaeyja sem staðar til að búa á, þrátt fyrir að ánægja með þjónustu sveitarfélagsins sé sú sama og fyrir ári. Það kemur ekki á óvart eftir þennan vetur.

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, kynnti þessar niðurstöður á almennum íbúafundi sem haldinn var í gær. Jafnframt var á þeim fundi farið yfir hringrásarlögin og breytingarnar sem innleiðing þeirra hefur í för með sér. Fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Brynjar Ólafsson, framkvæmdastjóri umhverfis-og framkvæmdasviðs voru með erindi. Upplýsandi umræður voru að erindum loknum.

Hægt er að sjá niðurstöður þjónustukönnunar Gallup (hér)

Ábendingar um niðurstöður þjónustukönnunarinnar og það sem má betur fara er hægt að senda á netfangið thjonustukonnun@vestmannaeyjar.is

Mynd Addi í London.

Íris bæjarstjóri kynnir niðurstöðurnar.

Nýjustu fréttir

Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?
Norðurinngangur við sjúkrahúsið opinn á ný
Viðhorf til bæjarstjóra í brennidepli í nýrri könnun
Vinnustofur í stað líkamsræktar?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.