Lifandi gína í jólaösinni

Þeim brá mörgum í brún sem gengu fram hjá skóverslun Axel Ó. í Vestmannaeyjum í gær. Lifandi gína var í glugganum sem fæstir áttu von á. Kappinn kynnti nýjustu línuna í sundfatnaðinum en svo skemmtilega vill til að hann mun ganga í það heilaga milli jóla og nýárs. Stúlkurnar virtust hins vegar taka þessari nýbreytni með jafnaðargeði en samkvæmt heimildum Eyjafrétta, ruku sundskýlur út í tugatali þetta kvöld. Hér að neðan má svo sjá fleiri myndir af gínunni.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.