Ísland væri miklu betur statt ef að ekki væri fyrir alla þessa heimskingja og aumingja sem vinna láglaunastörf og eru oftar ekki baggi á þjóðfélaginu. Það yrði bara sjálfsafgreiðsla í þessum búðum eins og Bónus, Rúmfatalagernum og öðrum ömurlegum verslunum. Svo væri hægt að troða öllum Pólverjunum í að skúra og hreinsa göturnar svo að flotta fólkið þyrfti nú ekki að hafa áhyggjur ofan í alla hinar áhyggjurnar sem þau hafa.
Það er alltaf eitt sem að maður tekur eftir á jólunum og það er þetta ómannlega sem virðist vera færast í aukana. Fólki liggur svo mikið á að það eina sem kemst að er það sjálft…þetta ÉG fólk sem er gjörsamlega að ganga frá Íslandi jafnt og þétt. Aðilar eins og Hannes Hólmsteinn Gissuarson sem vita betur heldur en sérfræðingar um loftslagsbreytingar eru nauðsynlegir fyrir íslenskt þjóðfélag vegna þess að þá getum við öll lokað augunum fyrir því sem er að og glaðst með okkar nánustu og yfir öllum auðæfum okkar. Er það ekki bara frábært ?
En í lok þessarar færslu ætla ég samt sem áður að óska ykkur gleðilegra jóla og bið ykkur að hugsa vel um ykkur…svo mætti jafnvel gleðja einhvern með því að láta pakka undir jólatréð í Kringlunni eða leggja eitthvað til annarra góðgerðamála. Sé ykkur eftir jólin…adios !