Úthlutað úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja
24. desember, 2007

Árleg úthlutun úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vestmannaeyja fór fram í gærdag. Styrktar- og menningarsjóðurinn var stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglundsson fyrrverandi sparisjóðsstjóra og er þetta í tuttugasta skiptið sem úthlutað er úr sjóðnum, en fyrsta úthlutunin var á Þorláksmessu árið 1988.

Að þessu sinni fengu eftirfarandi styrki:

Gaujulundur
Það var sumarið 1988 sem hjónin Erlendur Stefánsson og Guðfinna Ólafsdóttir hófu af mikilli eljusemi uppgræðslu og ræktun í dalverpi eða lundi á Nýja hrauninu í Vestmannaeyjum aðeins 15 árum eftir jarðeldana 1973.  Það eru því 20 ár næsta sumar síðan uppgræðslan hófst, en í upphafi var þar enginn jarðvegur annar en tómur vikur.  Með árunum dafnaði lundurinn og fékk nafnið Gaujulundur eftir öðrum frumherjanum.  Lundurinn hefur haft mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem og Eyjamenn og á síðasta sumri skrifuðu sig um 3000 manns í gestabókina en margir komu án þess að kvitta fyrir.  Erlendur lést í ágúst á þessu ári.  S.l. sumar tóku Sólbakkablóm, sem hjónin Jónas Þór Sigurbjörnsson og Hrefna Ósk Erlingsdóttir reka, við umhirðu og áframhaldandi uppbyggingu Gaujulundar.  Sparisjóðurinn vill leggja sitt af mörkum til að viðhalda því uppbyggingarstarfi sem frumherjarnir lögðu grunn að í virðingarskini við þá.  Auk þess að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu m.a. til að bæta aðgengi að Gaujulundi.

Skólalúðrasveit Vestmannaeyja
Skólalúðrasveit Vestmannaeyja sem starfar í dag var stofnuð í febrúar á árinu 1978 og verður því 30 ára á næsta ári.  Áður hafði starfað skólalúðrasveit sem stofnuð var 1956, sú sveit tengdist Gagnfræðaskólanum.  Skólalúðrasveitin er alfarið skipuð nemendum Tónlistaskóla Vestmannaeyja og er hluti af starfi skólans.  Allan þennan tíma hefur hún haldið úti kröftugu starfi.  Frá stofnun sveitarinnar var hún undir stjórn Hjálmars Guðnasonar sem lést langt fyrir aldur fram í janúar 2006.  Þá tóku Eggert Björgvinsson og Jarl Sigurgeirsson við sem stjórnendur sveitarinnar, en Eggert hafði áður starfað sem aðstoðamaður Hjálmars.  Öflugt foreldrafélag hefur ávalt starfað með sveitinni og staðið fyrir söfnunum m.a. í ferðasjóð og til búningakaupa.  Á næsta ári stefnir Skólalúðrasveitin á ferð til Danmerkur en áður hefur sveitin farið þrisvar erlendis.

Óskar Sigurðsson, vitavörður
Óskar Sigurðsson, vitavörður og veðurathugunarmaður varð 70 ára í nóvember á þessu ári.  Hann er fæddur og uppalinn í Stórhöfða.  Veðurathuganir í Stórhöfða hófust 1921 en viti var fyrst byggður þar árið 1906.  Óskar byrjaði árið 1952 að aðstoða föður sinn við veðurathuganir og tók formlega við árið 1965.  Hann er þriðji ættliðurinn sem sinnir þessu starfi.  Óskar hefur um áratugaskeið sinnt fuglamerkingum og hefur merkt yfir 100 þúsund lunda auk annarra fugla, sem mun vera heimsmet í merkingu sjófugla.  Hann hefur stunda ýmis önnur rannsókna- og vísindastörf m.a. tekið loftsýni fyrir bandaríska vísindastofnun.
Árið 1997 var Óskar sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir störf í þágu fuglarannsókna.  Óskar hefur auk þessa hlotið markvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín m.a. frá bandarískri vísindastofnun.  Sparisjóðurinn vill heiðra Óskar fyrir ævistarf hans við veðurathuganir og önnur vísindastörf í Vestmannaeyjum.

Bókasafn Vestmannaeyja
Fyrstu bækur eftir Vestmannaeying voru prentaðar árin 1652 og 1662.  Um er að ræða Genesesarsálma og Davíðssálmaútleggingar sr. Jóns Þorsteinssonar píslarvotts (f. 1570? – d. 1627).  Bækur þessar eru vitaskuld orðnar svo fágætar að engin von er um að eignast af þeim eintak lengur.  Örfá eintök eru varðveitt í veröldinni, þar af eitt af hvorri bók í Landsbókasafni Íslands.  Samið hefur verið við Landsbókasafn um að ljósmynda bækurnar í upprunalegri stærð og búa á þann hátt til eftirgerð þessara tveggja bóka.  Kári Bjarnason, forstöðumaður Bókasafnsins hefur ritað upp báðar þessar bækur á nútímaíslensku, en þær eru prentaðar með gotnesku letri og samið orðskýringar við þar sem þörf er á.  Bækurnar verða eign Vestmannaeyjabæjar og vistaðar í Bókasafninu.

Menningarmiðstöð fyrir ungt fólk – Vosbúð
Í mars á þessu ári tók Menningar- og tómstundaráð Vestmannaeyja ákvörðun um að koma upp menningarmiðstöð fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára í Vestmannaeyjum.  Starfsemin sem er að Strandvegi 65 – Vosbúð opnaði fyrr í vetur.  Ungmennin skipa húsráð og hafa sjálf veg og vanda að skipulagningu húsnæðisins sem nú er orðið hið glæsilegasta.  Starfsemin er margs konar, t.d. kaffihús, þráðlaust internet, billjardborð, risasjónvarp o.fl.
Markmið Vosbúðar er þríþætt: að bjóða upp á heilbrigðan valkost í afþreyingu ungs fólks í Vestmannaeyjum, að aðstoða ungt fólk við að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og að vera leiðandi í jákvæðu starfi ungs fólks í Vestmannaeyjum í samstarfi við hina ýmsu aðila.  Starfsemin hefur farið vel af stað en krakkana vantar nauðsynlega ýmsan búnað til að reka menningarmiðstöðina.  Sparisjóðurinn vill með framlagi sínu koma að þessu uppbyggingarstarfi með krökkunum.

Samstarfssamningar vi Taflfélag Vestmannaeyja og golfklúbbinn
Við sama tækifæri var skrifað undir samstarfssamning við Taflfélag Vestmannaeyja og Golfklúbb Vestmannaeyja. Golfklúbburinn fékk þriggja ára samning og Taflfélagið tveggja ára samstarfssamning. Sparisjóðurinn og bæði þessi félög hafa átt í farsælu samstarfi um mörg undanfarin ár og eru þessir samningar staðfesting á áframhaldandi samstarfi.  Bæði Golfklúbburinn og Taflfélagið eru einir af burðarásum íþrótta- og æskulýðsstarfs í Vestmannaeyjum.  Sparisjóðurinn metur það af verðleikum og eru samningarnir sem eru undirritaðir núna áþreifanlegur vitnisburður um aðkomu Sparisjóðsins að íþrótta- og æskulýðsstarfi félaganna.

Myndagallerý frá undirritun samstarfssamninga og afhendingar styrkja úr Styrktar- og menningarsjóði má sjá hér

 

 

 

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Forsida 11 Tbl 2025
11. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.