Já það var heldur en ekki pínleg staða sem ég lenti í fyrr í dag. Þannig er að ég hafði samið jólalag og langaði að deila því með nokkrum vel völdum einstaklingum sem ég þekki. Lagið er á myspace síðunni hjá Mekbuda og því auðvelt að senda bara link á alla á msn contact listanum mínum sem ég vildi að hlustuðu á lagið. Uþb 15 manns voru þegar þetta var online og ég klikkaði það fyrsta og skrifaði smá skilaboð um að ég myndi ekki senda jólakort í ár heldur senda jólalag til fólks. Í lokin á þessu skrifaði ég svo Hér er jólakortið mitt í ár (og eftir fylgdi hlekkur beint á myspace síðuna)
Þennan texta kóperaði ég svo í nokkra glugga og sendi jafnóðum. Svo þegar ég var búinn að kíkja á þetta þá klikkaði ég á linkinn og í sama augnabliki byrjuðu allar “línur” að loga neðst á skjánum mínum.. Ég hafði víst í byrjun tekist að skrifa mypsace.com í stað myspace og munurinn á þessu tvennu er afar einfaldur..
Eitt er einhver klámsíða og hitt er okkar ástkæra MySpace… Það þarf ekki að spyrja að því hvað fólk var að segja við mig næstu mínúturnar… Ég sat eldrauður í framan og skammaðist mín á meðan hugur minn fór í hendingskasti yfir það hvort ég hafi nokkuð sent þetta á mömmu eða einhverja ættingja sem ekki hafa aldur til að sjá svona fínheit.
Hér er svo réttur linkur á lagið sem ég svo stoltur vildi sýna fólki..
www.myspace.com/mekbuda
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.