70. grunnskólabörn heimsækja slökkviliðið nú á aðventunni.

Eins og undanfarin ár heimsóttu okkur 8 ára grunnskólabörn úr Hamarsskólanum til að fræðast um eldvarnir í heimahúsum. Farið var yfir þær hættur sem geta skapast af kertaskreytingum  og hvernig skuli bregðast við þeim hættum. Farið yfir þau öryggistæki á heimilum sem eru nauðsynleg eins og reykskynjarar, eldvarnateppi, slökkvitæki og einnig  þarf fjölskyldan að ræða um flóttaleiðir á sínu heimili.Farið einnig yfir þann búnað sem allir þurfa að vera með um áramótin þegar verið er með blys og flugelda. Reykkafari hjá slökkviliðinu sýndi börnunum búnað sinn og einnig prófuðu þau hjálma slökkviliðsmanna. Smá gjafir fengu börnin frá Tryggingarmiðstöðinni, Lionsklúbbnum og slökkviliðinu. Og í lokin var börnunum skutlað aftur í skólann með slökkviliðsbíl.


Vestmannaeyjar 12.des 07.  Ragnar þór Baldvinsson slökkviliðsstjóri.

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Flugvél frá Icelandair flaug óvenju lágt yfir Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.