Árni færir Kvennafangelsinu ný rúm

„Við höfum verið gleymda fangelsið. Það að Árni skuli hafa munað eftir okkur gerir hann að vinsælasta manninum hér,“ varð einum fanganum í Kvennafangelsinu
í Kópavogi að orði í gær þegar Árni Johnsen mætti með flutningabíl fullan af nýjum springdýnum fyrir fangana.

Tildrög gjafarinnar eru þau að daginn eftir að Árni færði Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg sjónvörp í haust fékk hann símtal frá kvenfanga í Kópavogi. Sagði hún rúmin þar jafngömul fangelsinu, sem og svampdýnurnar sem væru orðnar morknar. Árni gekk í málið, fékk nokkur félög og einkaaðila til að styrkja málefnið og keypti síðan tólf vönduð rúm frá RB rúmum í Hafnarfirði með afslætti. „Þetta er eins og gerist á bestu hótelum borginnar,“ sagði Árni stoltur þegar hann gekk inn með fyrstu dýnuna úr flutningabílnum.

Einar Andrésson, varðstjóri í Kvennafangelsinu, segir að beðið hafi verið um ný rúm árum saman enda afar mikilvægt að fólk geti fengið góða hvíld. „Það er nú bara þannig að fangelsi eru alltaf látin sitja á hakanum,” sagði hann og bætti við: „Ég held að þetta verði til þess að mikið dragi úr bakvandamálum og lyfjanotkun vegna verkja.” „Æi, ég gleymdi að ryksuga gólfið fyrir nýja rúmið,” hrökk upp úr einni konunni þegar þær fylgdust með því þegar nýju rúmin voru borin inn í herbergin og því greinilegt að þeim þótti mikið til gjafarinnar koma.

Nýjustu fréttir

Bilun í Herjólfi – sérfræðingur kallaður til frá Noregi
Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokknum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.