Á réttri leið.

Hér er bara allt við sama heygarðshornið, veð erum búnir að frysta um 150 tonn og gengur vel, nema að ein síldarvélin var eitthvað að stríða okkur í nótt. Við liggjum enn hér við Hvammsfjörð og höfum það bara næs í blíðunni, förum örugglaega ekkert út fyrr enn á morgun því við erum með nóg af síld í tönkum og erum því bara rólegir hérna á króknum.

Kokkurinn hann Eysteinn var eitthvað að pota í mig með það að ég væri illa upp alinn út af því að ég er ekki tilbúinn að leggja mér ónýtann fisk til munns, það er nebblega alltaf saltfiskur á laugadögum hér á sjónum, og er þetta hefð sem ég mundi ekkert sjá eftir ef hún dytti uppfyrir, en ég fæ mér bara kremkex á laugardögum og er bara sáttur með það, því Eysteinn er svo yfirleitt með fisk af álseyjarbleiðunni sem er veiddur allveg uppvið Brandinn og er það auðvitað besti fiskur sem hægt er að fá, og Eysteinn nostrar svo aðeins við hann þó svo það sé engin þörf á því með svona góðan fisk, svo ættla ég að setja hérna mynd af kokkinum handa henni Írisi, konunni hans Eysteins og mín fyrrverandi……………… eða sko fyrrverandi nágranni, því ég veit að ég er kominn í favorites hjá henni, þó svo að ég veit að ég sé alltaf búinn að vera í favorites hjá henni þó svo að maður hafi nú annað slagið þannið raddböndinn undir ljúfum gídartónum hjá tobba langt fram á nótt, jafnvel með hann Róbert littla ný fæddan, sammt lét hún mig eiginlega nánast aldrei heyra það, minntist kanski aðeins á það ef maður mætti henni fyrir utan hurðina. Þannig að ég ætla að bæta henni upp eitthvað af þessu svefnleysi með því að birta hér myndir af litla ástar krúsí pungnum hennar.

Gunni bloggar á http://gunniep.blog.is

 

Nýjustu fréttir

Fyrstu kjarnasýnin komin upp á Landeyjasandi
Hélt að verið væri að gera grín í sér
Útlaginn gefur út sitt fyrsta lag: „Þetta er bara byrjunin“
Frá lofti og landi: Uppbygging Laxeyjar tekur á sig mynd
Sólarlag Guðrúnar kemur út í dag
ÍBV stelpurnar mæta Þrótti R. í undanúrslitum Mjólkurbikarsins
Karfi og blandaður afli hjá Eyjunum
Innblásturinn er alls staðar

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.