Styttri jól í eyjum

Jólin í Vestmannaeyjum verða degi styttri en jól annarra landsmanna. Bæjaryfirvöld og ÍBV hafa ákveðið að færa þrettándann yfir á laugardaginn 5. janúar, þar sem heppilegra er að halda hátíð þann dag.Þessi háttur verður hafður á næstu tvö árin. Það þýðir að þrettándinn verður laugardaginn 3. janúar að ári. Jólin styttast því um þrjá daga árið 2009.

Þrettándanefnd ÍBV samþykkti tillöguna á fundi sínum í vikunni, en fundinn sat einnig Elliði Vignisson bæjarstjóri, að því er kemur fram á vefnum sudurland.is. Lofuðu bæjaryfirvöld frekari aðkomu að þrettándagleðinni ef hún yrði haldin á laugardegi.

Þrettándagleðin hefur verið stór viðburður í jólahaldinu í Vestmannaeyjum í rúmlega hálfa öld. Þá kveðja jólasveinarnir, Grýla og Leppalúði íbúa Heimaeyjar með virktum.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.