Nú á laugardaginn 17.nóv klukkan 15.00 er leikur ÍBV – Hauka í Vestmannaeyjum.
Gengi liðana er mjög missjafnt, Haukar eru í öðru sæti með 12. stig hafa unnið 5 gert 2 jafntefli og tapað 1. Síðasti leikur hjá þeim fór 22-22 á móti Val eftir að hafa leitt í hálfleik 14-11. Markmenn Hauka hafa verið að verja ágætlega fram af þessu eru með 13,87 varða bolta í leik. Haukarnir er með mjög jafnt lið og eru 10 leikmenn komnir með fleiri en 10 mörk í deildinni.
Markhæstir í liði Hauka eru þeir Freyr Brynjarsson með 35, Andri Stefan með 33 mörk, Sigurbergur Sveinsson með 26, Arnar Jón Agnarsson með 26.
ÍBV hafa byrjað tímabilið mjög illa haf tapað 8 fyrstu leikjum sínum og erum í neðsta sæti með markatöluna -77. Síðasti leikur ÍBV var á móti Fram úti síðustu helgi og endaði hann 38-26. Markmenn ÍBV hafa varið að verja mjög vel fram af þessu eru með 16,25 varða bolta sem er með því hærra í deildinni. ÍBV er að spila á fáu mönnum og aðeins 6 leikmenn komnir með fleiri en 10 mörk.
Markahæstir í liði ÍBV eru þeir Sindri Haraldsson með 37, Sigurður Bragason með 33, Zilvinas Grieze með 30, Leifur og Nikki með 23 og Grétar Þór með 14 aðrir með minna.
ÍBV þarf að fara hala inn stig svo þeir missi ekki Aftureldingu og Akueyri of langt fram úr sér sem eru í 6. og 7. sæti.
Hvetjum við alla Eyjamenn að fara á leikinn og sjá lið ÍBV berja á Eyjamönnunum Gunnari berg, Kára kristján og Arnar péturs í liði Hauka.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.