Kennarafélag Vestmannaeyja kvartar undan starfsaðstöðu kennara

Á fundi skólamálaráðs þann 6.nóvember var tekið fyrir bréf frá Kennarafélagi Vestmannaeyja þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna starfsaðstöðu og starfslíðan kennara í Barnaskólanum.

Framkvæmdir hafa staðir yfir í Barnaskólanum frá því sumar og samkvæmt heimildum www.eyjar.net frá kennurum í Barnaskólanum eru kennarar í skólanum orðnir langþreyttir á þeirri starfsaðstöðu sem þeir hafa þurft að vinna við frá skólabyrjun.

 

Í dag er t.d. ekki símakerfi virkt í húsinu og því ekki hægt að hafa samband milli skólastofa eða á skrifstofu skólans. T.d. getur kennar ekki hringt eftir aðstoð ef að eitthvað bjátar á og lyftur verða ekki komnar í skólann fyrr en um jólin.

Þegar kennarar mættu til starfa við skólabyrjun voru iðnarmenn enn að störfum og má segja að iðnarmenn hafi verið samhliða nemendum í skólanum það sem af er skólavetri.

Skólamálaráð ályktar um málið og segist skilja þá aðstöðu sem kennarar starfa við og þakkar þá þolinmæði sem kennarar hafa sýnst í því breytingarferli sem átt hefur sér stað.

Nýjustu fréttir

Spennandi prófkjör Sjálfstæðismanna í Eyjum
Pílan: Deildarkeppni lokið – Útsláttur hefst
Fasteignaumfjöllunin – útsýni á heimsmælikvarða
Fyrir þig en ekki sjálfa sig
Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.