Nemendafélag FÍV og eyjar.net í samstarf

Fyrr í þessari viku var undirritað samkomulag milli Nemendafélags Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum og 24seven ehf rekstraraðila www.eyjar.net um samstarf þeirra á milli.
Samstarfið felur það í sér að www.eyjar.net verða einn af styrktaraðilum nemendafélagsins í vetur og mun hýsa síðu nemendafélagsins á slóðinni www.eyjar.net/nemo

Nemendafélagið hefur opnað vefsíðu á slóðinni www.eyjar.net/nemo þar sem hægt er að fylgjast með því blómlega starfi sem er í gangi hjá félaginu.
Í dag eru félagar yfir 200 og telst það mesti fjöldi nemenda í félaginu frá upphafi. NFFÍV sendi karla- og kvenna lið í umspil á fótboltamót framhaldsskólanna 20 – 21 október og var FÍV eini skólinn sem náði báðum liðum í úrslitakeppnina.

Í hádeginu á föstudaginn kemur Þórhallur Þórhallsson fyndnasti maður Íslands í heimsókn í skólann og verður hann með uppistand í hádeginu. Frítt er fyrir þá sem eru í nemendafélaginu en 1500 kr kostar inn fyrir þá sem eru fyrir utan og eru allir velkomnir.

Það voru þeir Haraldur Pálsson formaður Nemendafélagsins, Kristinn Erlingur Árnasson varaformaður nemendafélagsins og Hlynur Vídó fyrir hönd 24seven ehf sem undirrituðu þennan samstarfssamning.

Vefsíða nemendafélagsins er www.eyjar.net/nemo

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.