150 milljónum verður varið til að jafna flutningskostnað

Lagðar verða 150 milljónir króna til jöfnunar flutningskostnaðar á landinu samkvæmt fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár. Í svari við fyrirspurn á Alþingi í dag um strandsiglingar fagnaði Kristján L. Möller, samgönguráðherra, því að fjármunir væru ætlaðir til að jafna flutningskostnað. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins spurði ráðherrann hvort hann hygðist beita sér fyrir auknum strandsiglingum sem hagkvæmum kosti. Kristján kvaðst hlynntur slíkum flutningum. Benda mætti á að stjórn Evrópusambandsins reyndi að koma þungaflutningum af þjóðvegum í Evrópu. Hugsanlega mætti hvetja til strandsiglinga með því að bjóða út flutninga á 2500 gámum á einu ári. Færu flutingar niður fyrir þá tölu myndi ríkið greiða mismuninn. Þannig mætti tryggja strandsiglingafyrirtæki lágmarkstekjur.

Árni Þór Sigurðusson, þingmaður VG, benti á að sjóflutningar væru umhverfismál. Í umræðunum benti Grétar Mar Jónsson Frjálsynda flokknum á að þungaflutninar í gegn um höfuðborgina með olíu og bensín væru óviðunandi. Sem betur fer væri  flugvélareldsneyti flutt sjóleiðina til Helguvíkur. Kristján Möller bætti við að þrisvar til fjórum sinnum í viku færu fullfermdir olíubílar til Ísafjarðar, ýmist um Hvalfjarðargöng eða fyrir Hvalfjörð eftir því á hvaða tíma sólarhrings þeir væru á ferðinni.

Eitt fyrirtæki stundar sjóflutninga milli Akureyrar og nokkurra annarra hafna. Skipið er skráð í Færeyjum af hagkvæmnisástæðum og sagði samgönguráðherra að með því væru í raun Færeyingar að niðurgreiða sjóflutninga hér á landi.

Nýjustu fréttir

„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.