Frítt á völlinn á morgun föstudag

Á morgun föstudag er síðasti heimaleikur sumarsins hjá meistaraflokki ÍBV en það eru Fjölnismenn sem koma í heimsókna til eyja og leika liðin á Hásteinsvelli klukkan 17:15.

Fyrr um daginn eða klukkan 15:00 er lokahóf yngri flokka ÍBV í knattspyrnu í Íþróttamiðstöðinni. Eftir lokahófið mun svo Þorkell Sigurjónsson taka fyrstu skóflustunguna að nýju knattspyrnuhúsi.

ÍBV á enn möguleika að komast upp í úrvalsdeild og verða þeir að sigra Fjölni á morgun og vona að Reynir Sandgerði sigri Þrótt. Mikilvægt er að eyjamenn fjölmenni á völlinn á morgun og ætla Glitnir og Fasteign að bjóða frítt á völlinn.

Styðjum strákana í þeirra síðasta heimaleik sumarsins.
ÁFRAM ÍBV

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.