Margrét Lára valin best

Margrét Lára Viðarsdóttir, leikmaður Vals, var í dag valin besti leikmaður 13.-18. umferða Landsbankadeildar kvenna.

Besti þjálfarinn var valinn Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Vals.  

Þá var einnig lið umferðanna valið en eftirfarandi leikmenn skipa það:  

Markvörður: Guðbjörg Gunnarsdóttir, Val.  

Varnarmenn: Alicia Wilson, KR – Ásta Árnadóttir, Val – Guðný Björk Óðinsdóttir, Val.  

Miðvallarleikmenn: Edda Garðarsdóttir, KR – Greta Mjöll Samúelsdóttir, Breiðabliki – Hólmfríður Magnúsdóttir, KR – Katrín Jónsdóttir, Val – Málfríður Sigurðardóttir, Val.  

Sóknarmenn: Margrét Lára Viðarsdóttir, Val – Olga Færseth, KR.  

Landsbankinn, verðlaunaði einnig besta stuðningsmannahópinn. Þar urðu stuðningsmenn Vals fyrir Valinu og fengu að launum eitt hundrað þúsund krónur sem rennur til yngri flokka starfs félagsins.  

Valur varð Íslandsmeistari kvenna eftir harða baráttu við KR í allt sumar. KR komst þó í bikarúrslitin og mætir þar Keflvíkingum um næstu helgi.        

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.