Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur ákveðið að segja af sér þingmennsku. Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, tilkynnti þetta í upphafi þingfundar í dag. Guðni var landbúnaðarráðherra frá 1999 til 2007. Varaformaður Framsóknarflokksins frá 2001 og formaður Framsóknarflokksins frá 2007. Sturla þakkaði Guðna fyrir góð störf og sagði að hann hefði sett svip sinn á Alþingi lengi. Ekki er vitað um ástæður þessa.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.