ÍBV ætlar ekki að semja við lettneska framherjann Aleksandrs Cekulajevs sem hefur verið til reynslu hjá liðinu að undanförnu. Aleksandrs lék nokkra æfingaleiki með ÍBV og skoraði gegn Víði Garði en Eyjamenn hafa ákveðið að semja ekki við hann. „Hann var ekki nógu öflugur,“ sagði Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV við Fótbolta.net í gær.