Úganski miðjumaðurinn Tonny Mawejje meiddist illa í leik með ÍBV gegn HK í Lengjubikarnum í dag. Mawejje lenti illa og var borinn af leikvelli en óttast er að hann hafi jafnvel slitið krossband í hnénu. Ef svo er, mun hann varla spila knattspyrnu næstu níu mánuðina og er því jafnvel úr leik hjá ÍBV. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu mikið áfall það yrði fyrir annars þunnskipaðan leikmannahóp ÍBV.