Það verður líflegt að vanda Herrakvöldið hjá handknattleiksráði ÍBV sem verður í Akóges á laugardagskvöldið. Viktor Ragnarsson, sem að vanda ber hitann og þungann af undirbúningi Herrakvöldsins, lofar bestu skemmtun þetta árið í Eyjum. „Matreiðsla verður í höndum Kára Vigfússonar, stórmatreiðslumeistara og Páll Scheving verður veislustjóri. Þar eru sannarlega snillingar á ferð sem kunna til verka,“ sagði Viktor.