Eyjatríóið Dólgarnir spilar á lokakvöldi Músíktilrauna sem fram fer á laugardaginn. Dólgarnir tóku þátt í öðru undankvöldi keppninnar en voru ekki meðal þeirra tveggja sveita sem komust áfram þá. Hins vegar velur dómnefndin aukasveitir eftir á, sem fá tækifæri á lokakvöldinu og voru Dólgarnir ein þriggja sveita sem urðu fyrir valinu.