Nýi þjóðvegurinn til Vestmannaeyja er í augsýn. Í fyrradag var auglýst ferðaáætlun og verðskrá, en nýi vegurinn verður tekinn í notkun þann 1. júlí n.k. Þrátt fyrir að Eyjamenn hefðu viljað hafa áætlunina eitthvað öðruvísi verður hér um gífurlega byltingu að ræða í samgöngumálum. Segja má að loksins núna árið 2010 séu Eyjamenn að komast í alvöru í tengsl við þjóðvegakerfi landsins. Það munu skapast gífurlegir möguleikar við þessa breytingu.