Keppnin Ungfrú Suðurland fór fram í gærkvöldi á Hótel Selfossi. Hlíf Hauksdóttir, leikmaður ÍBV í knattspyrnu, var valin Ungfrú Suðurland en aðrar Eyjastúlkur fengu fjölmörg verðlaun. Birgitta Ósk Valdimarsdóttir varð í öðru sæti og Ragna María Gestsdóttir í því þriðja. Sara Dögg Guðjónsdóttir var valin vinsælust en Thelma Sigurðardóttir var valin ljósmyndafyrirsæta og Sportstúlka.