Hugsanlegt er að tímabilinu sé lokið hjá Eyjamanninum Hermanni Hreiðarssyni en hann virtist meiðast illa í leik Tottenham og Portstmouth í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hermann var borinn útaf með á 51. mínútu og var með súrefnisgrímu þegar hann var borinn af velli. Svo virðist sem að landsliðsfyrirliðinn hafi misstigið sig svona illa en enginn annar leikmaður var nálægt honum þegar það gerðist.