Á morgun, sunnudaginn 28. mars fer fram Íslandsmót barna í Vestmannaeyjum. Um er að ræða yngsta aldurshópinn sem tekur þátt í Íslandsmótinu, börn fædd 1999 og síðar en það er Taflfélag Vestmannaeyja sem hefur umsjón með mótinu. Mótið hefst klukkan 9.00 í Tónlistarskólanum við Vesturveg og skora forráðamenn TV á alla krakka á þessum aldri að taka þátt í mótinu.