KFS hefur fengið Anton Bjarnason, Arnór Eyvar Ólafsson, Elías Fannar Stefnisson og Gauta Þorvarðarson á láni frá ÍBV. Leikmennirnir eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu sem stendur og þar sem að ÍBV á einungis einn leik eftir í Lengjubikarnum þá hafa þeir fengið að fara á láni í KFS til að komast í betri leikæfingu fyrir Íslandsmótið.