Það var frekar rólegt hjá lögreglu í vikunni sem leið og engin alvarleg mál sem upp komu. Að vanda fór vinna lögreglu um helgina í að aðstoða fólk vegna ölvunarástands þess en það var þó með minna móti um sl. helgi en undanfarnar helgar. Að morgni sl. föstudags var lögreglu tilkynnt um vinnuslys í fiskvinnslufyrirtækinu Pétursey, en þarna hafði starfsmaður slasast þegar lyftaragaffall losnaði af og lenti á fæti starfsmannsins.