Eins og greint var frá í gær, er byrjað að prufukeyra tæki og tól í útisvæði sundlaugarinnar. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að stíga næsta skref og hleypa almenningi í garðinn. Hægt verður að prófa nuddpottinn, aðra af tveimur rennibrautum og vaðlaug, en hún verður þó áfram yfirbyggð vegna lokaframkvæmda. Þá bíða margir spenntir eftir vatnsgufunni og fá hinir óþreyjufullu tækifæri til að prófa í dag.