Mikið rok er nú í Eyjum en klukkan 7.00 í morgun mældist meðalvindhraði 30 metrar á sekúndu og í nótt fóru mestu hviðurnar upp í 37 metra á sekúndu. Landfestar uppsjávarskipsins Álseyjar VE slitnuðu í morgun en Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri hjá Ísfélaginu, sem á og rekur skipið, segir enga hættu hafa verið á ferðinni.