Hægt að kjósa frá og með deginum í dag
Frá og með deginum í dag, þriðjudaginn 6. apríl verður hægt að kjósa utan kjörfundar í sveitastjórnarkosningum. Kosið verður 29. maí næstkomandi en frestur til að skila inn framboðslista rennur út 8. maí næstkomandi. Og þá vandast málið. Hvað á að kjósa? Eins og staðan er í dag liggur ekki ljóst fyrir hvaða framboð hægt verður að kjósa um 29. maí næstkomandi. Þó er nokkuð ljóst að Sjálfstæðisflokkur og Vestmannaeyjalistinn muni bjóða fram en þessir tveir listar mynda bæjarstjórn í dag þar sem Sjálfstæðismenn eru með fjóra bæjarfulltrúa en Vestmannaeyjalistinn þrjá. Samfylkingin, Vinstri-Grænir og óháðir standa að Vestmannaeyjalistanum.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.