Þann 21. apríl, síðasta vetradag mun vinsælasta band Íslands í dag mæta í Höllina og halda magnaða tónleika fyrir Eyjamenn. Þetta er bandið Dikta sem hefur slegið heldur betur í gegn í ljósvakamiðlum, á þar tvö topplög og er að gera allt vitlaust í bænum. Dikta hélt magnaða tónleika á NASA um daginn og komust færri að þar en vildu og svo sló sveitin gjörsamlega í geng á Aldrei fór ég suður” um helgina.