Skipstjóri í Vestmannaeyjum var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir brot á lögum um umgengni um nytjastofna sjávar og fyrir brot á lögum um stjórn fiskveiða. Hann var ákærður fyrir að hafa í júní 2008, eftir að vigtun var lokið úr skipinu eftir veiðiferð, sett óvigtað fiskikar sem innihélt 243 kíló af slitnum humri og 20 kíló af slægðum skötusel í bifreiðina sína og ekið með aflann að versluninni Skýlinu við Friðarhöfn í Vestmannaeyjum og þannig vanrækt að láta vigta aflann.