Málið þar sem skipstjóri í Vestmannaeyjum er dæmdur til að greiða 600 þúsund krónur í sekt fyrir að taka 243 kíló af slitnum humri og 20 kíló af slægðum skötusel framhjá vigt sýnir vel bilunina í þessu blessuðu fiskveiðistjórnunarkerfi. Vinnandi menn – hetjur hafsins og hermenn þjóðarinnar – sem eru vanir að taka með sér grams” úr aflanum eru dregnir fyrir dóma og dæmdir glæpamenn fyrir vikið. Þeir hefðu líka gerst brotlegir við lög ef þeir hefðu hent aflanum í sjóinn eins og þeir segja að hafi verið valkosturinn.