Allir fjórir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sem nú sitja í bæjarstjórn, skipa fjögur efstu sætin á framboðslista flokksins fyrir sveitastjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi. Elliði Vignisson, bæjarstjóri skipar fyrsta sætið, Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs annað sætið, Páll Marvin Jónsson, bæjarfulltrúi skipar þriðja sætið og Gunnlaugur Grettisson, forseti bæjarstjórnar er í fjórða sætið. Listinn var samþykktur nú í kvöld og má skoða hann hér að neðan.