Með opnun Landeyjahafnar í sumar verður bylting í samgöngumálum Eyjamanna. Til þessa hafa menn einkum einblínt á þær breytingar sem hin nýja siglingaleið hefur á þá sem þegar ferðast milli lands og Eyja. Breytingarnar sem verða með hinni nýju höfn eru hins vegar miklu víðtækari. Nýir möguleikar opnast í flutningum á fólki og farmi og ef við höldum rétt á spilunum geta Vestmannaeyjar öðlast nýtt hlutverk sem hlið Íslands að umheiminum.