Söngkeppni framhaldsskólanna fer fram á laugardaginn og verður í íþróttahöllinni á Akureyri eins og undanfarin ár. Landsmenn þurfa ekki að örvænta því keppnin verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 og það sem meira er, útsendingin er í opinni dagskrá. Fulltrúi Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum er söngkonan Silja Elsabet Brynjarsdóttir en þetta er í annað sinn sem hún tekur þátt í keppninni.