Miðvikudaginn 21. apríl, síðasta vetrardag, mun ein vinsælasta hljómsveit dagsins halda tónleika í Höllinni. Lag sveitarinnar, Thank you hefur verið vinsælasta lag landsins síðustu vikur en forsölu á tónleikana lýkur í dag á Volcano Café. Miðaverð í forsölu er 2000 kr en miðaverð er 3000 kr.