Mikið hreins­unarstarf framundan
Bæjarbúar hafa verið duglegir við hreinsun á húsum og görðum eftir öskufallið um síðustu helgi. Enn er þó mikil aska á götum og víðs vegar um bæinn sem gerir það að verkum að svifryksmengun er mikil um leið og hreyfir vind. „Við erum með öll okkar tæki á fullu,“ sagði Ólafur Snorrason framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs á þriðjudag. „Við erum með einn sóparabíl, þrír vörubílar eru á ferðinni, einn frá Áhaldahúsi og tveir aðrir sem hirða upp kör og poka með ösku og svo eru þrjár gröfur að skafa upp af köntum við götur. Slökkvi­lið bæjarins og flugvallar eru við hreinsun við skóla, sjúkrahúsið og fleiri stofnanir.“

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.