Hátíðahöldin á Þjóðhátíðardaginn, 17. júní fóru vel fram í Vestmannaeyjum í gær enda veður milt og gott. Ágætis aðsókn var á hátíðarhöldin, meiri en oft áður og dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg. Gengið var fylktu liði frá íþróttamiðstöðinni og niður á Stakkagerðistún þar sem hin eiginlegu hátíðahöld fóru fram.