Ungur piltur ók á lögreglubíl í Vestmannaeyjum í nótt þegar lögregla reyndi að stöðva för hans. Bíll ökumannsins er nokkuð skemmdur að sögn lögreglu en lögreglubíllinn skemmdist minna. Pilturinn er yngri en sautján ára og því ekki kominn með ökuréttindi. Til að bæta gráu ofan á svart reyndist hann síðan undir áhrifum áfengis og fíkniefna.