Tunglfiskur barst Fiska- og Náttúrugripasafninu í Eyjum
Fiska- og Náttúrugripasafni Vestmannaeyja barst í dag Tunglfiskur. Áhöfnin á Kap VE dró fiskinn úr hafinu um það bil 60 sjómílur út af Reykjanesi en Kap var þar við Makrílveiðar. Reynt verður að stoppa fiskinn upp en fyrir er á safninu eitt eintak. Tunglfiskur er þyngsti beinfiskur jarðar og getur orðið yfir tvö tonn að þyngd og rúmir þrír metrar að lengd samkvæmt alfræðisíðunni Wikipedia.org. Algeng stærð við Ísland er hins vegar 150-250 sentímetrar en fiskurinn sem kom til Eyja er líklega rúmir 100 sentímetrar að lengd.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.