Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að áfram verði unnið að því að koma upp flotbryggju í Landeyjahöfn, þótt leyfi Siglingastofnunar liggi ekki fyrir. „Á seinustu dögum hefur Vestmannaeyjabær átt í góðri samvinnu við Siglingastofnun vegna þeirrar brýnu þarfar sem er fyrir neyðaraðkomu smábáta í Landeyjahöfn. Bent hefur verið á að nú þegar hafa hundruðir farþega farið þarna um við erfiðar aðstæður og einhverjar ferðir hafa verið farnar með sjúkraflutninga. “