Sundkappinn Benedikt Lafleur ætlar að synda úr Landeyjahöfn til Vestmannaeyja sunnudaginn 18. júlí næstkomandi. Benedikt er vanur sjósundskappi, synti m.a. Drangeyjasund á síðasta ári en það sund er um 8 kílómetrar. Leiðin milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja er hins vegar rúmir 11 kílómetrar en Benedikt segist óhræddur.