Starfsmenn Vestmannaeyjabæjar vinna nú hörðum höndum að viðhaldi og fegrun umhverfisins. Meðal þeirra verka sem til falla á hverju sumri er að mála línur og gangbrautir á götur bæjarins en þessa dagana vinna tveir hópar við að mála línurnar. Á hverjum stað er helmingi götunnar lokað með keilum, bæði á meðan málað er og á meðan málningin þornar. Hins vegar hefur það komið fyrir að ökumenn virða ekki lokanirnar.