Tilhlökkun vegna Þjóðhátíðar í Eyjum eykst dag frá degi – nema á lögreglustöðinni. Þar taka menn ekki gleði sína aftur fyrr en að lokinni Þjóðhátíð. Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum, segist vonast til þess að gestir á Þjóðhátíð í Eyjum í ár verði ekki fleiri en 16.000 en í fyrra voru þeir um 14.000. Hann segir að öryggisgæsla verði mikil bæði hjá lögreglunni og starfsmönnum hátíðarinnar. Hann segist þó ekki taka gleði sína fyrr en Þjóðhátíð er lokið.