Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að Margrét Lára Viðarsdóttir er meidd. Hún telur ólíklegt að hún nái leiknum mikilvæga gegn Frökkum 21. ágúst en það er úrslitaleikur um efsta sæti riðilsins í undankeppni HM. „Það eru meiri líkur en minni á að ég missi af Frakkaleiknum eins og staðan er núna. Ég er sam bjartsýn manneskja að eðlisfari og vona að þetta gangi upp,“ sagði Margrét Lára í samtali við Moggann.