Danien Justin Warlen er nafn sem stuðningsmenn ÍBV verða að leggja á minnið en þessi s-afríski sóknarmaður tryggði ÍBV sigurinn á Fram í dag. Danien var að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliðinu og í annað sinn sem hann er í leikmannahópnum. Hann nýtti tækifærið vel, spilaði vel framan af og skoraði sigurmarkið í 1:0 sigri ÍBV. Um leið skaut hann ÍBV á topp Pepsídeildarinnar, tímabundið í það minnsta en Eyjamenn þekkja þá stöðu orðið mjög vel.