Ritstjórn Eyjafrétta.is hefur tekið saman vinsælustu fréttir vefsins á árinu sem nú er að ljúka. Vinsælasta frétt ársins birtist strax í upphafi árs, eða 10. janúar síðastliðinn og snerist um starfsmann fyrirtækisins. Sá hafði verið að mynda á Þrettándahátíðinni þegar óvættir úr fjöllum Eyjanna réðust á hann fyrirvaralaust. Frétt um málið birtist undir fyrirsögninni „Ráðist á ljósmyndara Eyjafrétta – þrjótarnir náðust á myndband en hlupu til fjalla“ og var að sjálfsögðu á léttu nótunum. Alls var fréttin lesin 23.418 sinnum en lista yfir 15 vinsælustu fréttir ársins má sjá hér að neðan.