Styrktarmótið fyrir Steingrím Jóhannesson, markahrók hefur heldur betur slegið í gegn í Eyjum því alls eru 29 lið skráð til leiks í mótinu. Þátttakendur eru líklega á annað hundrað manns enda flest lið með einhverja varamenn. Allur ágóði mótsins rennur til Steingríms og fjölskyldu en Steingrímur glímir við krabbamein.